Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 879, 148. löggjafarþing 453. mál: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (hálfur lífeyrir).
Lög nr. 28 8. maí 2018.
Sjóðfélagi getur ákveðið að hefja töku hálfs ellilífeyris hvenær sem er eftir að 65 ára aldri er náð að því skilyrði uppfylltu að hann sé ekki í meira en hálfu starfi sem veitir aðild að sjóðnum eða hefði veitt rétt til aðildar að sjóðnum fyrir stofnun A-deildar sjóðsins.
Þingskjal 879, 148. löggjafarþing 453. mál: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (hálfur lífeyrir).
Lög nr. 28 8. maí 2018.
Lög um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum (hálfur lífeyrir).
1. gr.
9. mgr. 24. gr. laganna orðast svo:Sjóðfélagi getur ákveðið að hefja töku hálfs ellilífeyris hvenær sem er eftir að 65 ára aldri er náð að því skilyrði uppfylltu að hann sé ekki í meira en hálfu starfi sem veitir aðild að sjóðnum eða hefði veitt rétt til aðildar að sjóðnum fyrir stofnun A-deildar sjóðsins.
2. gr.
2. málsl. 2. mgr. 27. gr. laganna orðast svo: Makalífeyrir hækkar síðan um 20% af launum þeim er hann miðast við ef hinn látni sjóðfélagi hefur verið í fullu starfi við starfslok eða við töku hálfs ellilífeyris, sbr. 9. mgr. 24. gr., en hækkunin verður hlutfallslega lægri ef sjóðfélaginn hefur verið í lægra starfshlutfalli við starfslok eða þegar taka á hálfum ellilífeyri hófst.3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 2018.Samþykkt á Alþingi 26. apríl 2018.